Ferðaskrifstofum og ferðahópum standa eftirfarandi möguleikar til boða sumarið 2013.
- Venjuleg
heimsókn– með einfaldri kynningu safnvarðar – safnið
skoðað. Verð 1.200 kr. fyrir hvern í hópi.
- Safnið
skoðað með leiðsögn -bragðað á kryddsíld
með brennivínsstaupi. Verð 2.200 kr. fyrir hvern einstakling. Má panta með dags fyrirvara.
- Svolítil síldarsöltun - gömul vinnubrögð sýnd og harmonikuleikari laðar fram stemningu.Síldarsaga Íslendinga sögð með leiðsögn - safnið skoðað. Gestum
boðið að smakka síld með rúgbrauði og brennivínsstaupi. Verð 27.000 kr. + 2.200 kr. fyrir hvern í hópi. Þessa sýningu er
hægt að panta með tveggja daga fyrirvara.
- Stór
söltunarsýning, harmonikuspil, söngur og dans.Síldarsaga Íslendinga sögð með leiðsögn - safnið skoðað.Bragðað á síld með brennivínsstaupi. Verð 55.000 kr. + 2.200 kr. f. hvern
einstakling. Þarf að panta tímanlega - Hugsað fyrir stóra hópa.
- Athugið að leiðsögn utan dagvinnutíma kostar 10.000 kr.



