Ferðaskrifstofum og ferðahópum standa eftirfarandi möguleikar til boða sumarið 2010 - semja þarf fyrirfram um þá sérþjónustu sem lýst er í liðum 2-4.
- Venjuleg
heimsókn– með einfaldri kynningu safnvarðar – safnið
skoðað. Verð 1200 kr. fyrir hvern í hópi.
- Safnið
skoðað með leiðsögn -gömul kvikmynd, bragðað
á kryddsíld með brennivínsstaupi. Verð 1500 kr. fyrir hvern einstakling. Má panta með dags fyrirvara.
- Svolítil síldarsöltun - gömul vinnubrögð sýnd og harmonikuleikari laðar fram stemningu.Síldarsaga Íslendinga sögð með leiðsögn og gamalli kvikmynd - safnið
skoðað. Gestum boðið að smakka síld með rúgbrauði og brennivínsstaupi. Verð 15.000 kr. + 1500 kr. fyrir hvern í
hópi.Þessa sýningu er hægt að panta með tveggja daga fyrirvara.
- Stór
söltunarsýning, harmonikuspil, söngur og dans.Síldarsaga Íslendinga sögð með leiðsögn og gamalli kvikmynd - safnið skoðað.Bragðað á síld með
brennivínsstaupi.Verð 35.000 kr. + 1500 kr. f. hvern einstakling. Þarf að panta tímanlega - Hugsað fyrir stóra hópa.



