Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Ferðaskrifstofur og hópar

Ferðaskrifstofum og ferðahópum standa eftirfarandi möguleikar til boða sumarið 2010 - semja þarf fyrirfram um þá sérþjónustu sem lýst er í liðum 2-4.


  1. Venjuleg heimsókn– með einfaldri kynningu safnvarðar – safnið skoðað. Verð 1200 kr. fyrir hvern í hópi.
  2. Safnið skoðað með leiðsögn -gömul kvikmynd, bragðað á kryddsíld með brennivínsstaupi. Verð 1500 kr. fyrir hvern einstakling. Má panta með dags fyrirvara.
  3. Svolítil síldarsöltun - gömul vinnubrögð sýnd og harmonikuleikari laðar fram stemningu.Síldarsaga Íslendinga sögð með leiðsögn og gamalli kvikmynd - safnið skoðað. Gestum boðið að smakka síld með rúgbrauði og brennivínsstaupi. Verð 15.000 kr. + 1500 kr. fyrir hvern í hópi.Þessa sýningu er hægt að panta með tveggja daga fyrirvara.
  4. Stór söltunarsýning, harmonikuspil, söngur og dans.Síldarsaga Íslendinga sögð með leiðsögn og gamalli kvikmynd - safnið skoðað.Bragðað á síld með brennivínsstaupi.Verð 35.000 kr. + 1500 kr. f. hvern einstakling. Þarf að panta tímanlega - Hugsað fyrir stóra hópa.

     

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning