Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Róaldsbrakki - söltunarsýningin

Róaldsbrakki
Róaldsbrakki er norskt síldarhús byggt af Ole Tynes 1906 – 07 fyrir Olaf Roald í Álasundi. Um 1930 eignaðist Samvinnufélag Ísfirðinga húsið og eftir það var það nefnt Ísfirðingabraggi. Húsið var friðað 1977. Endurbygging þess hófst 1990 og lauk 1996 (sjá nánar um uppbygginguna).
Róaldsbrakki er hluti af hinni miklu söltunarstöð sem rekin var þarna í rúmlega 60 ár og er um leið mjög glæsilegur minnisvarði um áhrif og umsvif Norðmanna í síldarútveginum á Íslandi.
Á neðstu hæð hússins er sýning um síldarsöltun með samspili gamalla muna, mynda og texta. Framhald þeirrar sýningar er á annarri hæð, þar sem útflutningi síldarafurða og skipulagi söltunar eru gerð skil. Þá er þar yfirlit yfir síldarstaðina í landinu og svolítið um áhrif Norðmanna í síldarútveginum hérlendis. Þar eru einnig sérsýningar um líffræði síldarinnar, síldarrannsóknir og sögu síldveiða í öðrum Evrópulöndum. Gamlar kvikmyndir eru sýndar á skjá.
Að stórum hluta er gamli síldarbrakkinn sýndur eins og hann var á síldarárunum þegar tugir síldarstúlkna bjuggu þar á sumrin. Á þriðju hæð er gengið um vistarverur þeirra þar sem skynja má andrúmsloft liðins tíma. Þá er einnig til sýnis gamli "kontór síldarspekúlantsins" þar sem söltunarstöðinni var stjórnað og fólkið fékk greidd laun sín.
Framan við Róaldsbrakka er gamaldags bryggja þar sem allt er tilbúið til söltunar og gestir safnsins geta notið skemmtilegra og fræðandi sýninga á gömlum vinnubrögðum og stigið dans við dunandi harmóníkuspil.
Síldarminjaafnið í Róaldsbrakka hlaut Nýsköpunarverðlaun Ferðamálaráðs 1998. Heiðursviðurkenningu Lýðveldissjóðs 1999, Íslensku safnverðlaunin 2000 er þau voru veitt í fyrsta sinn og var valið besta nýja iðnaðarsafn í Evrópu árið 2004.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning