Bátahúsið var byggt 2003-2004 og vígt af Hákoni krónprinsi Noregs þann 29. júní 2004 (sjá
nánar um uppbygginguna).
Í anddyri Bátahússins er uppsett gömul
veiðarfæraverslun með innréttingum og verslunarvarningi úr Veiðarfæraverslun Sigurðar Fanndal sem rekin var á Siglufirði (frá u.þ.b.
1930-1997). Einnig er í forskálanum sýning um síldarleit.
Í meginsýningarrými Bátahússins er endursköpuð stemning síldarhafnarinnar frá 1950-55. Þar liggja síldarskip og bátar
við bryggjur með viðeigandi veiðarfærum. Í bryggjuskúrum er netagerðamönnum og smábátaútgerð gerð skil og gamlar kvikmyndir
frá síldveiðum sýndar.
Bátarnir eru:
- Týr SK 33. 38 tonna eikarbátur smíðaður á Fáskrúðsfirði 1946. Einn að nýsköpunarbátunum úr raðsmíðaverkefni á vegum ríkisstjórnarinnar. Hét fyrst Skrúður, síðan Hrafn SH og loks Týr. Var lengi gerður út frá Sauðárkróki afskráður þar 1988. Stundaði margvíslegar veiðar en hér sýndur sem síldveiðiskip með tvo snurpunótabáta.
- Snurpunótarbátur merktur Skildi SI 82. Smíðaður 1940-1950, fura og eik.
- Snurpunótarbátur frá Brávöllum í Eyjafirði. Uppruni óviss en líklega var hann notaður við smásíldarveiðar í Eyjafirði 1950-65.
- Sigurvin SI 16, bátur Gústa guðsmanns. Upprunalega norskur árabátur úr furu. Síðar breytt og gerður að lítilli trillu. Gústi gerði út bát sinn í kompaníi við Drottinn almáttugan um áratugaskeið. Allar tekjur af útgerðinni runnu til kristnidómsfræðslu barna í fjarlægum heimshlutum.
- Draupnir EA 70. 12 brl. Smíðaður 1954 úr eik á Hauganesi í Eyjafirði af Sigfúsi Þorsteinssyni. Gerður út frá Hauganesi, seldur til Þórshafnar 1980 og þaðan til Vestmannaeyja 1990 og hét þá Kristín VE 40. Hér sýndur sem reknetaveiðibátur til síldveiða.
- Hringnótarbátur merktur Einari HálfdánsÍS 3. Talinn smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði á tímabilinu 1950-1955.
- Árabátur Soffíu á Nesi. Smíðaður í Slippnum á Siglufirði um 1938 fyrir Soffu Jónsdóttur heimasætu á Staðarhóli og síðar húsfreyju á Siglunesi. (Sjá söguna „Hver var í bátnum“ í Siglfirskar þjóðsögur og sagnir eftir Þ. Ragnar Jónsson bls. 117)
- Árabátur/julla Guðjóns Eggertssonar, smíðuð af Þorgrími bátasmið í Hofsósi.
- Árabátur/julla Jóns Björnssonar, smíðuð af Jóni um 1976.

