Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Velkomin á heimasíðuna

Síldarminjasafn Íslands

Síldarminjasafnið er eitt stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins. Í þremur ólíkum húsum kynnumst við síldveiðum og vinnslu á silfri hafsins. Í Bátahúsinu liggja skip og bátar við bryggjur þar sem hafnarstemningin frá því um 1950 er endursköpuð. Róaldsbrakki er gamla norska söltunarstöðin og þar er flest eins og áður, vistarverur síldarstúlknanna, kontórinn og vinnuplássið. Á góðum sumardögum er þar sýnd síldarsöltun, harmonikan þanin og slegið er upp bryggjuballi. Í Gránu er safn um sögu bræðsluiðnaðarins sem löngum hefur verið kallaður fyrsta stóriðja Íslendinga. Þar hefur verið komið upp lítilli síldarverksmiðju frá 1935-40.

Safnið er opið daglega frá 1. júní - 31. ágúst kl 10-18. Vor og haust kl 13-17.  

Á öðrum tímum er opið eftir samkomulagi.

Aðgangseyrir er 1.200 kr. ókeypis er fyrir börn og unglinga undir 16 ára í fylgd með foreldrum. Lífeyrisþegar og ungmenni undir 20 ára greiða 600 kr.

Skólahópar: grunnskólar 200 kr. á hvern í hópi, framhaldsskólar 300 kr. á hvern í hópi.

Síldarminjasafnið hlaut Íslensku safnverðlaunin árið 2000 er þau voru veitt í fyrsta sinn og Evrópuverðlaun safna árið 2004, Micheletti verðlaunin, þegar safnið var valið besta nýja iðnaðarsafn Evrópu það árið.

Fréttir

Týr í viðgerð

Sigurður Steingrímsson nostrar við kompásinn
TÝR SK 33, stærsta skip Síldarminjasafnsins, er smám saman að ganga í endurnýjun lífdaga - ekki sem veiðiskip heldur lifandi vettvangur til skoðunar fyrir safngesti og til tónleikahalds. Lesa meira

Þingmenn heimsækja Síldarminjasafnið

Sigmundur, Árni, Rósa og Kristján. Mynd: Guðmundur Skarphéðinsson.
Þrír þingmenn Samfylkingarinnar voru staddir á Siglufirði í gær. Þetta voru þeir Kristján Möller, Sigmundur Ernir og Árni Páll en þeir höfðu boðað til opins fundar með íbúum Fjallabyggðar. Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning