Fréttir

„Að sjá það sem hulið er“

15. sep. 2019

Laugardaginn 14. september opnaði samsýning fimm myndlistarmanna og ljósmyndara í Síldarminjasafninu (Gránu) og Herhúsinu á Siglufirði. Sýnendur eru þau Haraldur Ingi Haraldsson sem sýnir Cod Head (akrýlverk á plastfilmu), Garún sýnir Skuggasveina (kindahorn og ull), J. Pasila ljósmyndaverk, Björn Valdimarsson ljósmyndir úr myndaröðinni Hvarf og Bergþór Morthens er með Flekann, olíu- og akrílmálverk. Sýningarstjóri er kanadíski háskólaprófessorinn Sara Matthews sem dvalið hefur í Listhúsinu í Ólafsfirði nokkrum sinnum síðustu árin. 

Sýningin ber heitið „Að sjá það sem hulið er“ og verður hún opin daglega í Gránu 14.-29. september kl. 13.00-17.00 og í Herhúsinu um helgar kl. 14.00-16.00. Frekari opnun þar verður auglýst sérstaklega og einnig er hægt að hafa sambandi við Björn eða Bergþór varðandi skoðun á sýningunni á öðrum tímum.

Fréttir