Fréttir

Barnamenningardagar

27. nóv. 2021

Vikuna 22. - 28. nóvember standa yfir Barnamenningardagar í Fjallabyggð.
Í tilefni þess var leikskólabörnum í sveitarfélaginu boðið að heimsækja Síldarminjasafnið. Í þetta sinn hittu þau fyrir síldarstúlkur í Róaldsbrakka. Lesinn var kafli um síldarsöltun úr Sögu úr síldarfirði, rætt um störf síldarstúlkna og börnunum sýnd helstu áhöld sem þær notuðust við. Svo fengu þau auðvitað að skoða vistarverur stúlknanna á lofti hússins. 
Alls komu um sextíu börn í heimsókn, sem öll höfðu gagn og gaman af. 

Fréttir