Fréttir

Fyrsta veislan í Salthúsinu

19. des. 2022

Um miðjan desembermánuð var haldin fyrsta veislan í Salthúsinu – sem var öllum viðstöddum mikið gleðiefni. Árlegt jólahlaðborð fyrir starfsfólk Síldarminjasafnsins, síldargengið og stjórn safnsins var að þessu sinni haldið í Salthúsinu. Uppbygging hússins hefur staðið yfir frá árinu 2014, en þá var það flutt sjóleiðis frá Akureyri til Siglufjarðar og endurreist á lóð Síldarminjasafnsins. Síðan hefur endurbygging hússins staðið yfir og gerir enn – og hvert rými á fætur öðru að taka á sig endanlega mynd.

Fréttir