Fréttir

55% færri gestir

30. des. 2020

Heimsfaraldur kórónaveiru hafði mikil áhrif á rekstur og starfsemi Síldarminjasafnsins á líðandi ári. 

Samkomutakmarkanir urðu þess valdandi að safnið var lokað gestum í rúmar sex vikur á vormánuðum og aftur í rúmar átta vikur í árslok. Skipulagðar heimsóknir ferðafólks í hópum þurrkuðust nær út og safngestir hafa ekki verið færri í áratug - eða frá því áður en Héðinsfjarðargöng komu til sögunnar.  
Tæplega tólf þúsund gestir sóttu safnið heim á árinu og voru erlendir ferðamenn um 27%. 
Til samanburðar voru gestir ársins á undan tuttugu og sex þúsund talsins og erlendir ferðamenn 72%. 

Þá heimsóttu tæplega 600 nemendur á öllum skólastigum Síldarminjasafnið í skipulögðum námsheimsóknum og íbúar Fjallabyggðar eru jafnframt tíðir gestir á safninu og voru um 330 á árinu.
Skipulagðar leiðsagnir um safnið voru 63 á árinu, samanborið við 355 á árinu áður.

Þrátt fyrir að árið hafi verið verulega krefjandi að flestu leyti hefur það jafnframt verið lærdómsríkt og viðburðaríkt. 
Starfsfólk Síldarminjasafnsins hefur tekist á við fjölbreytt verkefni og sinnt faglegu starfi af miklum móð. 

Starfsfólk safnsins þakkar öllum þeim er heimsóttu safnið á árinu kærlega fyrir komuna og óskar landsmönnum gleðilegs nýs árs! 

 

Fréttir