Fréttir

Hálfur Álfur sýnd í Gránu

31. okt. 2021

Föstudaginn 29. október var heimildarmyndin Hálfur Álfur eftir Jón Bjarka Magnússon sýnd í Gránu.

Myndin fjallar um vitavörðinn Trausta sem tengist sínum innri álfi á meðan hann undirbýr hundrað ára afmælið eða eigin jarðarför. Á sama tíma hörfar Hulda kona hans inn í heim horfinna ljóða með aðstoð stækkunarglersins síns. Þegar hann brestur í söng skipar hún honum að hætta þessum öskrum. Í Hálfum Álfi er lífinu fagnað, þrátt fyrir þann veruleika sem bíður okkar allra. Jón Bjarki fylgdi afa sínum og ömmu, þeim Trausta Breiðfjörð Magnússyni og Huldu Jónsdóttur frá Sauðanesi, svo úr varð hans fyrsta heimildamynd í fullri lengd.

Hálfur Álfur hefur fengið góðar viðtökur hér á landi sem og erlendis, en hún vann m.a. dómnefndarverðlaun Skjaldborgarhátíðarinnar 2020, var tilnefnd til edduverðlauna sem besta heimildamyndin, auk þess sem hún hefur verið sýnd á ýmsum kvikmyndahátíðum í Evrópu þar sem hún hefur verið tilnefnd til ýmissa verðlauna. „Sterk og heilsteypt saga, einlæg og tilgerðarlaus frásögn. Mynd sem hrífur mann með sér frá fyrstu mínútu og fær mann til að hlæja og gráta á víxl,“ sagði m.a. í umsögn dómnefndar Skjaldborgar.Þá fékk myndin fjórar stjörnur í Morgunblaðinu, en þar sagði gagnrýnandinn Gunnar Ragnarsson m.a. þetta um myndina: „Hálfur Álfur er skemmtileg og falleg mynd sem er merkilegur vitnisburður um fólk og kynslóðina sem það tilheyrir. Hún lýsir hversdagsleika þess en leyfir sér líka að vera ekki of jarðbundin. Gjörningur verksins er persónulegur, og sýnir fram á gildi þess að skapa list þvert á kynslóðir.“


Kvikmyndasýningin var öllum opin og vel sótt. 

Fréttir