Fréttir

Kvikmyndasýning í Gránu

21. jún. 2017

Laugardaginn 24. júní kl. 16:00 verður kvikmyndin Viljans Merki frá árinu 1954 sýnd í Gránu, bræðsluhúsi Síldarminjasafnsins.

Jón Ólafur Björgvinsson kynnir myndina og segir frá leit sinni að gömlum ljós- og kvikmyndum í sænskum söfnum.

Myndin er almenn kynningarmynd um Ísland, menningu og þjóð – og í lok myndarinnar er komið til Siglufjarðar þar sem ljómi síldarævintýrisins blasir við.

Allir velkomnir – enginn aðgangseyrir! 

Fréttir