Fréttir

NÁMSKEIÐ: Bátavernd og viðgerð gamalla trébáta

23. mar. 2016

Síldarminjasafn Íslands stendur fyrir námskeiði um bátavernd og viðgerð gamalla trébáta í Gamla Slippnum dagna 11. - 15. apríl nk. Námskeiðið er ætlað iðnnemum og öðrum áhugamönnum um bátavernd. Hafliði Aðalsteinsson bátasmiður og forsvarsmaður Báta- og hlunnindasýningarinnar að Reykhólum sér um kennslu, en Hafliði hefur áralangra reynslu af nýsmíði trébáta sem og viðgerðum gamalla. Viðfangsefni námskeiðsins er Gunnhildur ÓF18, 2 brl. afturbyggður súðbyrðingur úr furu og eik frá árinu 1982. Í upphafi námskeiðs skal fara fram leiðsögn um það hvernig ástand gamals báts skal metið og í framhaldinu verður unnið að viðgerðum á Gunnihildi undir handleiðslu Hafliða. Námskeiðið fer fram með þeim hætti að unnið er alla daga frá 8:00 - 18:00 síðdegis. Nemendur taki fullan þátt í smíði og annarri vinnu undir handleiðslu kennara. 

Meðal markmiða Síldarminjasafnsins er að standa vörð um forna þekkingu á smíði opinna tréskipa á Íslandi og er námskeiðið skipulagt í samræmi við samning safnsins við mennta- og menningarmálaráðuneytið þar sem kveðið er á um þetta hlutverk. Safnið skal standa vörð um forna þekkingu á smíði opinna tréskipa og annast námskeið og fræðslu um íslenska bátasmíði í samstarfi við söfn og menntastofnanir. Gamli Slippurinn er kjörinn vettvangur til námskeiðshalds, en um er að ræða verkstæði frá árinu 1934, sem komst í eigu Síldarminjasafnsins árið 2011. Í Gamla Slippnum er að finna gömul verkfæri og trésmíðavélar til bátasmíða. 
Fréttir