Fréttir

Gestum stórfjölgar!

19. maí 2016

Enn eru gestamet slegin á Síldarminjasafninu - fyrstu fjóra mánuði ársins var um tæplega 120% aukningu að ræða, miðað við sama tímabil á síðasta ári. Aukningin var svo mikil að í aprílmánuði einum og sér heimsóttu 1.170 gestir safnið, í samanburði við 950 gesti frá 1. janúar - 1. maí árið 2015. 

Hátt í 300 hópar hafa boðað komu sína á safnið í sumar jafnt sem fjórtán skemmtiferðaskip og er því útlit fyrir gott sumar.  Fréttir