Fréttir

Stríðið í Sýrlandi - fyrirlestur í Bátahúsinu 

16. des. 2016

Opinn fundur verðir í Bátahúsinu, mánudaginn 19. desember kl. 17:00 - 18:00. 

„Með því að þegja verður maður þátttakandi í þessu hörmulega stríði sem háð er á kostnað karla, kvenna og barna í Sýrlandi“ 

Khattab al Mohammad flúði stríðið í Sýrlandi árið 2012 ásamt fjölskyldu sinni og fékk hæli hér á landi í janúar síðastliðnum. Khattab fjallar um Sýrland, sögu landsins, menningu og fjölbreytileika og veitir innsýn inn í hörmungar stríðsins, þar sem margir vina hans og ættingja dvelja enn.

Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum.

Athygli er vakin á því að umfjöllun og myndefni fundarins er ekki fyrir viðkvæma.

Fréttir