Fréttir

Gestir hafa aldrei verið fleiri  

3. jan. 2017

Enn er slegið met í heimsóknum á Síldarminjasafnið. Á nýliðnu ári sóttu 25.000 manns safnið heim. Um er að ræða tæplega 15% aukningu frá fyrra ári auk þess sem erlendum gestum fjölgaði töluvert, en þeir telja um 60% af heildargestafjölda.

Þess má til gamans geta að skv. gestaskráningu hafa alls um 250.000 manns heimsótt safnið frá árinu 1994.

   

Fréttir