Fréttir

Sextíu kíló - Heimur bókanna opnast

19. nóv. 2024

Heimur bókanna Sextíu kíló opnast á Síldarkaffi miðvikudaginn 27. nóvember kl. 20:00 

Hallgrímur Helgason er margverðlaunaður metsöluhöfundur sem fangað hefur hug og hjörtu þjóðarinnar með verkum sínum um fólkið í sjávarþorpinu Segulfirði í bókum sínum Sextíu kíló af sólskini, Sextíu kíló af kjaftshöggum og þriðju bókinni, Sextíu kíló af sunnudögum sem kom út fyrr í haust.
Hallgrímur er kunnur sögumaður og hefur haldið gríðarlega vinsæl námskeið þar sem hann opnar bækurnar upp á gátt fyrir lesendum sínum og nú gerir hann gott betur og býður gestum til sætis á Síldarkaffi. Á sviðinu rekur hann frásögnina í gegnum skáldsögurnar af alkunnri list, les upp úr bókunum, lyftir hulunni af vinnuferlinu, baksögunum og innblæstrinum og gæðir persónur sínar lífi sem aldrei fyrr. Sýningin er unnin í samvinnu við Borgarleikhúsið.
Miðasala fer fram á Tix.is: https://tix.is/event/18709/sextiu-kilo

Fréttir