Fréttir

Síldarminjasafnið leitar eftir sumarstarfsfólki

3. apr. 2017

Síldarminjasafn Íslands auglýsir eftir sumarstarfsfólki til yfirsetu og mótttöku gesta. 

Starfið felst í gæslu með safnhúsum og sýningum þeirra, afgreiðslu og almennri þjónustu við safngesti. Starfsmenn þurfa að kynna sér síldarsöguna og sögu staðarins og vera tilbúnir til þess að svara spurningum safngesta. Starfstímabil er 1. maí – 1. október.

Hæfniskröfur:

  • Góð tök á enskri tungu
  • Stundvísi
  • Frumkvæði
  • Jákvætt viðmót 

 

Umsóknir sendist á netfang Anitu Elefsen, safnstjóra: anita@sild.is

Fréttir