Fréttir

Sjöunda rússneska kvikmyndavikan

18. sep. 2019

Rússneska kvikmyndavikan á Íslandi fer nú fram í sjöunda sinn. Að henni standa Kvikmyndaframleiðslumiðstöðin NORFEST og sendiráð Rússlands á Íslandi með stuðningi Menningarmálaráðuneytis Rússlands og iCan ehf. Í ár er viðburðurinn tileinkaður 75 ára afmæli stjórnmálasambands Rússlands og Íslands.

Föstudagskvöldið 20. september nk. verða sýndar tvær kvikmyndir í Gránu, bræðsluhúsi Síldarminjasafnsins. Sýningin hefst kl. 20:00.

Fyrst verður sýnd ein fyrsta sovéska heimildamyndin um Ísland. Myndin heitir Íslandsferðin og er frá árinu 1955. Í tilefni hátíðarinnar var myndin textuð og fylgir henni því íslenskur texti. 

Næst verður sýnt kvikmyndin Hamingjan er... eða Happiness is... en myndin er afrakstur verkefnis á vegum Walt Disney. Efnt var til samkeppni meðal rússneskra kvikmyndagerðarmanna og hæfustu leikstjórarnir og handritshöfundarnir verðlaunaðir með tækifæri til að framleiða sína fystu kvikmynd. Myndin kom út á þessu ári, 2019, og fjallar um hamingjuna. Myndin er á rússnesku en með enskum texta. Hér má sjá sýnishorn.

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir!

Fréttir