Fréttir

Starfsfólk Síldaminjasafnsins

29. ágú. 2023

Þetta sumarið taldi starfsfólk safnsins 14 manns, sem allflestir sinntu gestamóttöku og leiðsögnum um sýningar safnsins – en jafnframt bátasmíði, bryggjusmíði, rannsóknum, skráningu safnkosts, viðhaldi á sýningum safnsins og svona mætti áfram telja.Hópurinn er með eindæmum samheldinn og skemmtilegur, þó við segjum sjálf frá! Tekist er á við verkefni og áskoranir hvers dags með bros á vör og í góðri samvinnu hvort við annað. Við þreytumst ekki á að miðla sögu síldarinnar og Siglufjarðar með gestum okkar – sem hafa aldrei verið fleiri! 

Efri röð frá vinstri: Víkingur Ólfjörð Daníelsson, Einar Jóhann Lárusson, Hrafn Örlygsson, Úlfrún Kristínudóttir, Daníel Pétur Daníelsson.Neðri röð frá vinstri: Sigríður Birta Skarphéðinsdóttir, Rena Rasouli, Tinna Hjaltadóttir, Edda Björk Jónsdóttir, Lísa Margrét Gunnarsdóttir, Alexandros Rasoulis, Anita Elefsen & Hildur Örlygsdóttir. Á myndina vantar Brand Loka Gunnarsson. 

Fréttir