Fréttir

Styrkveitingar úr safnasjóði

25. jan. 2024

Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, úthlutaði styrkjum úr Safnasjóði við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu í gær samhliða ársfundi höfuðsafnanna þriggja. Síldarminjasafnið hlaut tvo veglega verkefnastyrki og fjóra styrki úr aukaúthlutun sjóðsins, og nemur upphæð þeirra alls 5,6 mkr.

⚜️ Átaksverkefni: Grisjunaráætlun og flutningur safnkosts til framtíðarvarðveislu: 2.500.000 kr.
⚜️ Rannsóknarverkefni: Síldarstúlkur – brautryðjendur kvenna í íslensku atvinnulífi: 2.000.000 kr.
⚜️ Gerð kynningarmyndbands í markaðsskyni: 300.000 kr.
⚜️ Alþjóðlegt þing sjóminjasafna / ICMM 2024: 300.000 kr.
⚜️ Skráning ljósmynda og notkun Fotostation – vistaskipti við Ljósmyndasafn Reykjavíkur: 200.000 kr.
⚜️ Námskeið fyrir safnafólk á Norðurlandi: Varðveisla málverka: 300.000 kr.

Starfsfólk og stjórn Síldarminjasafnsins færir safnasjóði bestu þakkir fyrir, en styrkveitingarnar styðja verulega við faglegt starf safnsins.

Fréttir