Fréttir

Tímabundin lokun vegna samkomutakmarkana

3. nóv. 2020

Í ljósi hertra samkomutakmarkana og sóttvarnarreglna verður Síldarminjasafnið lokað gestum fram til 18. nóvember, eða á meðan núverandi reglugerð er í gildi. Með þessari ákvörðun vill safnið sýna samfélagslega ábyrgð og samstöðu. 

Starfsfólk safnsins sinnir áfram faglegum störfum og er hægt að hafa samband í síma 467 1604 eða með tölvupósti á netfangið safn[hjá]sild.is.

Við hvetjum almenning til að fara varlega og huga vel að sóttvörnum. 

Fréttir