Fréttir

Tónleikar í Bátahúsinu: Tékkneskur oktett

20. ágú. 2023

Næstkomandi miðvikudagskvöld, 23. ágúst kl. 20:00 verða haldnir spennandi tónleikar í Bátahúsinu.

Oft er sagt um tónlistarverkefni að þau séu óvenjuleg, einstök og án hliðstæðu. Það má svo sannarlega segja um tékkneska oktettinn HLASkontraBAS, það er ólíklegt að það finnist samskonar hljómsveit nokkurs staðar í veröldinni. Oktettinn samanstendur af fjórum söngkonum og fjórum kontrabassaleikurum. Allt er þetta tónlistarfólk í fremsta flokki sem býr og starfar í Prag sem er hjarta tónlistarinnar í Tékklandi.

Dagskrá tónleikanna samanstendur af nýjum verkum með tónsmíðum eftir leiðandi tónskáld nútímans. Þessi verk voru samin sérstaklega fyrir oktettinn og eru eftir meðal annars íslensk tónskáld, þau Ragnheiði Gröndal og Pétur Ben.

Búast má við einstakri tónlistarlegri upplifun, óvenjulegum samhljómi fjögurra radda og fjögurra kontrabassa sem taka hlustandann á ferðalag um dularfullt, brothætt, villt en jafnframt fallega melankólískt landslag. HLASkontraBAS oktettinn var stofnaður árið 2019 sem útvíkkun á hinu upprunalega dúó-verkefni HLASkontraBAS en að því stóðu söngkonan og tónskáldið Ridina Ahmedová og kontrabassaleikarinn og tónskáldið Petr Tichý. Í upphafði notaði dúettinn lúppu-effekt til að búa til lög af hljóðum en ábakvið stækkunina upp í oktett var sú hugmynd að notast frekar við fleira tónlistarfólk til að glæða tónlistina meira lífi og túlkun mannssálarinnar. Það leiddi til þess að hægt var að skrifa músík fyrir sjálfan oktettinn með tilheyrandi mögueikum á útsetningum og öðruvísi tónlistarlegri hugsun. Oktettinn öðlaðist sitt eigið líf ef svo má segja, einstakt og hvetjandi.
Ridina Ahmedová : rödd
Alice Bauer : rödd
Mirka Novak : rödd
Markéta Zdenková : rödd
Petr Tichý : kontrabassi
Tomáš Liška : kontrabassi
Ondrej Štajnochr / Ondrej Komárek : kontrabassi
Petr Mikeš : kontrabassi

Verið hjartanlega velkomin! 

Fréttir