Fréttir

Vel sótt bátasmíðanámskeið

28. sep. 2023

Árlegt bátasmíðanámskeið hefur staðið yfir þessa vikuna, 25. – 29. september. Í Slippnum hafa tíu nemendur tekist á við viðgerðir súðbyrtra báta sem og nýsmíði á einum slíkum. Þátttakendur koma víðsvegar af landinu og eru ýmist áhugamenn um bátasmíði, starfsfólk safna eða smiðir. Hafliði Aðalsteinsson og Einar Jóhann Lárusson sinna kennslu á námskeiðinu og tryggja að allir hafi verkefnum að sinna, og það hefur enginn setið auðum höndum. Unnið hefur verið að því að skipta um umför í byrðingi, bönd og borðstokka – auk þess sem ný umför hafa verið sniðin og lögð í nýsmíðina, sem er endursmíði Hindisvíkurbátsins, ferærings frá 1876.

Handverkið við smíði súðbyrðings var samþykkt á heimsminjaskrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf árið 2021 – og því sannarlega þarft að standa fyrir slíkum námskeiðum og tryggja varðveislu handverksins.

Uppbyggingarsjóður SSNE veitti styrk til námskeiðsins og eru færðar bestu þakkir fyrir.

Fréttir