Fréttir
Guðrún Helga ráðin verkefnisstjóri
Guðrún Helga Stefánsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf verkefnisstjóra hjá Síldarminjasafninu og hefur störf um komandi mánaðarmót. Hún er menntuð í menningarstjórnun, viðskiptafræði og tónlist, og hefur yfir ellefu ára reynslu sem verkefnisstjóri markaðs- og kynningarmála hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur. Þar áður starfaði hún meðal annars sem sölustjóri hjá Norðursiglingu og Iceland Travel og hefur einnig komið að sýningarstjórn og hönnun hjá Tónlistarsafni Íslands.
Við erum gríðarlega ánægð að fá hana til liðs við okkur, hlökkum mikið til samstarfsins og bjóðum hana hjartanlega velkomna!
- Eldri frétt
- Nýrri frétt